
Afpantanir og breytingar á leigusamningi
Fyrir breytingar á leigusamningi fyrir orlofshús er tekið bókunargjald að upphæð 1.500 kr. Ef leigutaki óskar eftir að skila inn eða breyta leigusamningi þarf að senda beiðni með tölvupósti á orlof@efling.is með upplýsingum um nafn og kennitölu leigutaka ásamt samningsnúmeri.
- Leigjandi getur afbókað hús allt að 14 dögum fyrir dvöl gegn fullri endurgreiðslu að frádregnu bókunargjaldi. Endurgreitt er inn á reikning sem leigjandi er með skráðan.
- Leigjandi getur afbókað hús allt að 7 dögum fyrir dvöl gegn 50% endurgreiðslu að frádregnu bókunargjaldi. Ef starfsfólki Eflingar tekst að leigja hús út á umræddu tíma bili fæst 75% endurgreiðsla, að frádregnu bókunargjaldi. Endurgreitt er inn á reikning sem leigjandi er með skráðan.
- Ef leigusamningi er skilað inn seinna
(minna en 7 daga fyrirvara)
er ekki um neina endurgreiðslu að ræða
Veður/ófærð
Komist leigjandi ekki í bústað vegna veðurs/ófærðar ber að senda tilkynningu um það áður en leigutími hefst með tölvupósti á netfangið orlof@efling.is Forsenda fyrir endurgreiðslu vegna veðurs er að Veðurstofan hafi gefið út viðvörun. Ferðalög til og frá orlofshúsum eru alfarið á ábyrgð leigjanda og Efling greiðir ekki kostnað sem leigjandi kann að verða fyrir vegna slæmra veðurskilyrða. Mikilvægt er að kynna sér veðurspá og færð á vegum áður en lagt er af stað.
- Endurgreitt er að fullu.
- www.vedur.is (fyrir nýjustu upplýsingar um veður)
- www.umferdin.is (fyrir nýjustu upplýsingar um færð á vegum)
Veikindi
Senda þarf tilkynningu á netfangið orlof@efling.is áður en leigutími hefst og Orlofssjóði er jafnframt heimilt að fara fram á að leigutaki framvísi læknisvottorði.
- Endurgreitt er að fullu að frádregnu upphafsgjaldi sem kemur fram á leigusamningi.
- Endurgreitt er inn á reikning sem leigjandi er með skráðan.
- Leiga er aldrei endurgreidd ef tilkynning berst eftir að leigutími hefst.
