Trúnaðarmannanámskeið
Trúnaðarmannafræðsla

Næstu námskeið
Hér kemur dagatal með næstu námskeiðum
Trúnaðarmannanámskeið Eflingar
Námskeiðin veita trúnaðarmönnum félagsins nauðsynlega fræðslu og þjálfun til að sinna hlutverki sínu. Námskeiðin eru símenntun sem trúnaðarmönnum ber að sækja út allan sinn skipunartíma. Námskeið eru haldin á dagvinnutíma einn dag í mánuði september-maí. Hugað er til jafns að fræðsluþörfum nýskipaðra trúnaðarmanna og endurmenntun reynslumeiri trúnaðarmanna.
Námskeiðin fara fram í Félagsheimili Eflingar á 4. hæð í Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík. Boðið er upp á hressingu og heitan hádegisverð.
Námskeiðin eru trúnaðarmönnum Eflingar að kostnaðarlausu. Notast er við þýðingar og túlkun til að gera allt námsefni aðgengilegt á bæði íslensku og ensku.
Allir trúnaðarmann eru sjálfkrafa skráðir á námskeiðin. Áminningar og óskir um staðfestingu á komu eru sendar í tölvupósti á alla trúnaðarmenn.
Allar upplýsingar um skipulag námskeiða má nálgast með því að senda erindi hér eða með því að hringja á skrifstofuna í síma 510-7500.
Réttur til námskeiðssetu án launaskerðingar
Laun trúnaðarmanna eiga ekki að skerðast vegna setu á trúnaðarmannanámskeiðum og er það réttur allra trúnaðarmanna Eflingar að sækja trúnaðarmannanámskeið á vinnutíma. Trúnaðarmenn þurfa heldur ekki að vinna kvöldvakt þann dag sem þeir hafa setið trúnaðarmannanámskeið.
Skrifstofa Eflingar aðstoðar trúnaðarmenn í samskiptum við atvinnurekendur ef minna þarf á þessi réttindi. Óski trúnaðarmenn eftir því að slíkt erindi sé sent fyrir þeirra hönd skulu þeir hafa samband á felagsmal@efling.is.
Námsefni
Námsefni og glærur eru vistuð á lykilorðsvarinni lendingarsíðu hér. Hafið samband við skrifstofu félagsmála til að fá lykilorðið ef þið hafið týnt því.
Dagsetningar námskeiða veturinn 2025-2026
Almenni vinnumarkaðurinn
Fyrir áramót
- 8. september 2025 (mánudagur)
- 15. október 2025 (miðvikudagur)
- 13. nóvember 2025 (fimmtudagur)
- 18. desember 2025 (fimmtudagur)
Eftir áramót
- 13. janúar 2026 (þriðjudagur)
- 18. mars 2026 (miðvikudagur)
- 21. apríl 2026 (þriðjudagur)
- 28. maí 2026 (fimmtudagur)
Opinberi vinnumarkaðurinn
Fyrir áramót
- 8. september 2025 (mánudagur)
- 14. október 2025 (þriðjudagur)
- 12. nóvember 2025 (miðvikudagur)
- 17. desember 2025 (miðvikudagur)
Eftir áramót
- 12. janúar 2026 (mánudagur)
- 17. mars 2026 (þriðjudagur)
- 20. apríl 2026 (mánudagur)
- 28. maí 2026 (fimmtudagur)
