Kjarasamningur SFV og Eflingar
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu - Ritskýrður kjarasamningstexti sem gildir frá 1. nóvember 2024
1. Um kaup
1.1.1
Mánaðarlaun starfsmanns sem gegnir fullu starfi, skulu greidd
samkvæmt meðfylgjandi launatöflum í fylgiskjali 3.
Laun hækka sem hér segir nema annað leiði af fyrrgreindum launatöflum
sem fylgja samningi þessum.
- apríl 2025 3,50% eða 23.750 kr.
- apríl 2026 3,50% eða 23.750 kr.
- apríl 2027 3,50% eða 23.750 kr.
1.1.2
Brot úr mánaðarlaunum reiknast þannig, að deilt er með 21,67 í
mánaðarlaunin og margfaldað með fjölda almanaksdaga annarra en
laugardaga og sunnudaga frá upphafi eða til loka starfstíma.
1.2.1
Í launatöflu eru 6 þrep
og raðast starfsmaður eftir aldri sem hér segir:
Frá 1. janúar 2021 breytist grein 1.2 og verður svo hljóðandi:
1.3.1
Tímakaup í dagvinnu er 0,632% af mánaðarkaupi í hverjum
launaflokki og þrepi.
1.3.2
Heimilt er að greiða tímavinnukaup í eftirfarandi tilvikum:
- Nemendum við störf í námshléum.
- Lífeyrisþegum sem vinna hluta úr starfi.
- Starfsmönnum sem ráðnir eru til skamms tíma vegna sérstakra,
árvissra álagstíma, þó eigi lengur en tvo mánuði.
- Starfsmönnum sem ráðnir eru til að vinna að sérhæfðum afmörkuðum
verkefnum.
- Starfsmönnum sem starfa óreglubundið um lengri eða skemmri tíma,
þó aðeins í algjörum undantekningartilvikum.
- Ekki er heimilt að greiða tímakaup í vaktavinnu
Ekki er heimilt að greiða tímavinnukaup í dagvinnu umfram 100%
starfshlutfall í hverjum mánuði sbr. gr. 2.3.5 og 2.3.6.
1.4.1
Yfirvinna er greidd með tímakaupi, sem skiptist í yfirvinnu 1 og
yfirvinnu 2. Tímakaup yfirvinnu 1 er 0,9385% af mánaðarlaunum í hverjum
launaflokki og þrepi en tímakaup yfirvinnu 2 er 1,0385% af mánaðarlaunum
í hverjum launaflokki og þrepi.
Greiðsla fyrir yfirvinnu skal vera með eftirtöldum hætti:
Yfirvinna 1 Kl. 08.00 - 17.00 mánudaga -- föstudaga.
Yfirvinna 2 Kl. 17.00 - 08.00 mánudaga -- föstudaga.
Yfirvinna 2 Kl. 00.00 - 24.00 laugardaga, sunnudaga og sérstaka
frídaga.
Tímakaup yfirvinnu 2 greiðist jafnframt fyrir vinnu umfram 38,92
stundir á viku (168,63 stundir miðað við meðalmánuð).
*Föst yfirvinna sem er merkt sem slík í launakerfinu verði greidd sem
yfirvinna 2.*
1.4.2
Öll vinna sem unnin er á stórhátíðum skv. gr. 2.1.4.3. greiðist með tímakaupi sem nemur 1,375% af mánaðarlaunum.
1.4.3
Sé yfirvinna fjarri föstum vinnustað ekki greidd skv.
tímareikningi, skal semja um þá greiðslu fyrirfram við viðkomandi
starfsmann og í samráði við stéttarfélagið.
1.5.1
Vaktaálag reiknast af dagvinnukaupi sbr. gr. 1.3.1.
Vaktaálag skal vera:
33,33% kl. 17:00 - 24:00 mánudaga - fimmtudaga
55,00% kl. 17:00 - 24:00 föstudaga
65,00% kl. 00:00 - 08:00 þriðjudaga - föstudaga
55,00% kl. 08:00 - 24:00 laugardaga, sunnudaga, mánudaga og sérstaka
frídaga
75,00% kl. 00:00 - 08:00 laugardaga, sunnudaga, mánudaga og sérstaka
frídaga
120,00% kl. 00:00 - 24:00 stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3, þó þannig
að frá kl. 16:00 - 24:00 á aðfangadag og gamlársdag og kl. 00:00 --
08:00 á jóladag og nýársdag er 165,00% álag.
Brot úr klst. greiðist hlutfallslega.
1.5.2
Greiðsla fyrir bakvaktir skal reiknast af dagvinnukaupi sbr. gr.
1.3.1
með eftirtöldum hætti:
33,33% kl. 17:00 - 24:00 mánudaga - fimmtudaga
45,00% kl. 17:00 - 24:00 föstudaga
45,00% kl. 00:00 - 08:00 mánudaga
33,33% kl. 00:00 - 08:00 þriðjudaga - föstudaga
45,00% kl. 00:00 - 24:00 laugard., sunnud. og sérstaka frídaga
120,00% kl. 00:00 - 24:00 stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3, þó þannig
að frá kl. 16:00 - 24:00 á aðfangadag og gamlársdag og kl. 00:00 --
08:00 á jóladag og nýársdag er 165,00% álag.
Brot úr klst. greiðist hlutfallslega. Um greiðslur fyrir útköll á
bakvakt gilda
gr. 2.3.3.1 og 2.3.3.2.
1.5.3
Vinnutími starfsmanna skal vera samfelldur eftir því sem við
verður komið. Greitt skal fyrir eyður í vinnutíma með vaktaálagi, skv.
gr. 1.5.1.
1.5.4
Greiðsla fyrir eyður og bakvakt á dagvinnutímabili skv. gr. 2.2.1
er 33,33% álag.
1.6.1
Persónuuppbót (desemberuppbót) á samningstímanum verður sem hér
segir:
Á árinu 2024 106.000 kr.
Á árinu 2025 110.000 kr.
Á árinu 2026 114.000 kr.
Á árinu 2027 118.000 kr.
Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá
greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf
tímabilið 1. janúar til 31. október. Persónuuppbót er föst krónutala og
tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á persónuuppbót
reiknast ekki orlofsfé. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið
hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á
framangreindu tímabili.
Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað
hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda
persónuuppbót, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt
starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu
stofnunar lýkur eða í fæðingarorlofi. Áunnin persónuuppbót skal gerð upp
samhliða starfslokum.
1.7.1
Heimilt er að greiða viðbótarlaun umfram reglubundin mánaðarlaun.
Ákvörðun um greiðslu viðbótarlauna skal tekin af forstöðumanni og vera í
samræmi við reglur fjármála- og efnahagsráðherra um greiðslur
viðbótarlauna. Fjárhæð viðbótarlauna skal rúmast innan fjárveitingar
viðkomandi stofnunar og byggja á málefnalegum sjónarmiðum. Greiða má
viðbótarlaun í allt að sex mánuði en ef tilefni er til er heimilt að
framlengja greiðslu þeirra um þrjá mánuði í senn en þó aldrei lengur en
í tvö ár samfellt.
2. Um vinnutíma
2.1.1
Vinnuvika starfsmanns í fullu starfi er 36 virkar vinnustundir.
2.1.2
Heimilt er að haga vinnu með öðrum hætti en í kafla þessum greinir
með samkomulagi starfsmanna og forráðamanna stofnunar og með skriflegu
samþykki samningsaðila.
Samningsaðilum er heimilt að semja um rýmkun dagvinnutíma á virkum
dögum, umfram þau tímamörk sem um getur í gr. 2.2.1.
2.1.3
Vinnutími skal vera samfelldur eftir því sem við verður komið.
Fyrir eyður í vinnutíma er greitt skv. gr. 1.5.3 og 1.5.4.
2.2.1
Tímamörk dagvinnu eru frá kl. 08:00 til kl. 17:00 á virkum dögum
frá mánudegi til föstudags.
Þær stofnanir sem hafa haft aðra vinnutilhögun haldi henni.
2.2.2
Forstöðumanni stofnunar er heimilt að verða við óskum einstakra
starfsmanna um sveigjanlegan vinnutíma á tímabilinu kl. 07:00 - 18:00 á
virkum dögum. Leita skal samþykkis samningsaðila þegar slíkar heimildir
eru veittar.
2.2.3
Dagvinnumaður sem vinnur hluta af vikulegri vinnuskyldu sinni utan
dagvinnutímabils skv. gr. 2.2.1, skal fá greitt álag skv. gr. 1.5.1 á
þann hluta starfs síns. Hafi verið samið um rýmkun á dagvinnutímabili,
skv. 2. mgr.
gr. 2.1.2 eða gr. 2.2.2, greiðist ekki álag utan þeirra tímamarka sem
greinir í gr. 2.2.1.
2.2.4
Falli niður vinna á verkstað vegna veðurs eða annarra orsaka sem
starfsmenn eiga enga sök á, skal skylt að greiða kaup fyrir fastan
reglulega vinnutíma.
Í slíkum tilvikum er heimilt að fela starfsmönnum önnur viðfangsefni í
þágu stofnunarinnar.
2.3.1
Yfirvinna telst sú vinna, sem fer fram utan tilskilins daglegs
vinnutíma eða vaktar starfsmanns svo og vinna, sem innt er af hendi
umfram vikulega vinnutímaskyldu þótt á dagvinnutímabili sé.
2.3.2
Öll vinna sem unnin er á sérstökum frídögum skv. gr. 2.1.4.2,
greiðist sem yfirvinna skv. gr. 1.4 nema vinnan falli undir gr. 2.6.7.
2.3.3
Útköll
2.3.3.1 Útkall á virkum dögum á tímabilinu kl. 08:00-24:00.
Þegar starfsmaður er kallaður til vinnu sem ekki er í beinu framhaldi af
daglegri vinnu hans, skal greitt yfirvinnukaup fyrir að minnsta kosti 3
klst., nema reglulegur vinnutími hans hefjist innan þriggja klst. frá
því hann fór til vinnu en þá greiðist yfirvinna frá upphafi útkalls fram
til þess að reglulegur vinnutími hefst. Ljúki útkalli áður en 3 klst.
eru liðnar frá lokum hinnar daglegu vinnu, skal greiða yfirvinnu fyrir
tímann frá lokum hinnar daglegu vinnu til loka útkalls.
2.3.3.2 Útkall milli kl. 00:00 og 08:00 og á almennum og sérstökum
frídögum.
Ef útkall hefst á tímabilinu kl. 00:00-08:00 frá mánudegi til föstudags,
kl. 17:00-24:00 á föstudegi eða á almennum eða sérstökum frídögum skv.
gr. 2.1.4.1 og 2.1.4.2, skal greitt yfirvinnukaup fyrir að minnsta kosti
4 klst. nema reglulegur vinnutími hefjist innan 3 ½ klst. frá því að
útkall hófst en í þeim tilvikum skal greiða ½ klst. til viðbótar við
unninn tíma.
Við lágmarksgreiðslu í útkalli bætist hvorki matar- og/eða kaffitími né
ferðatími eða bæting fyrir slíkt. Sé um endurtekin útköll að ræða með
stuttu millibili skal greiða samfelldan tíma frá upphafi fyrra/fyrsta
útkalls þangað til síðara/síðasta útkalli lýkur.
2.3.4
Hafi starfsmaður skv. lögum eða samningi skemmri vikulega
vinnuskyldu en gert er ráð fyrir í gr. 2.1.1 skal vinna umfram hana
greidd skv. gr. 2.3.5 og 2.3.6.
2.3.5
Óreglubundin vinna umfram hina skertu vinnuskyldu eða samfelld
vinna skemur en einn mánuð, greiðist með því kaupi, sem greitt er fyrir
yfirvinnu.
2.3.6
Reglubundin vinna dagvinnumanna innan dagvinnumarka, í einn mánuð
eða lengur, allt að vinnuskyldu miðað við fullt starf, greiðist sem
reiknað hlutfall af mánaðarlaunum enda hafi starfsmanni verið kynnt það
áður en sú vinna hófst. Það sama gildir um reglubundna vinnu
vaktavinnumanna, að uppfylltum sömu skilyrðum, óháð því hvenær
sólarhrings sú vinna fer fram.
*Því er beint til stofnana að setja sér nánari reglur varðandi
yfirvinnu og hvenær sé rétt að ræða endurskoðun á starfshlutfalli enda
sé yfirvinna reglubundin eða fyrirséð.*
2.3.7
Öll yfirvinna skal greidd eftirá fyrir hvern mánuð eða hverja
þrjátíu daga og komi til útborgunar eigi síður en 15 dögum eftir síðasta
dag reikningstímabilsins. Sama gildir um greiðslu fyrir yfirvinnu á
veikindatímabili.
2.3.8
Heimilt er starfsmanni, með samkomulagi við vinnuveitanda, að
safna frídögum vegna yfirvinnu, á þann hátt að yfirvinnutímar komi til
uppsöfnunar og frítöku á dagvinnutímabili en yfirvinnuálagið er greitt
við næstu reglulegu útborgun. Samkomulag skal vera um töku frísins og
það skipulagt þannig að sem minnst röskun verði á starfsemi stofnunar.
Frí samkvæmt framansögðu, vegna undanfarandi almanaksárs, sem ekki hefur
verið nýtt fyrir 15. apríl ár hvert, eða við starfslok, skal greitt út á
dagvinnutaxta viðkomandi starfsmanns við næstu reglulegu útborgun.
Ef samkomulag er á milli aðila má einnig veita 1,62 klst. í frí í
dagvinnu fyrir hvern yfirvinnutíma og fellur þá greiðsla yfirvinnukaups
niður enda kemur hún í stað unninnar yfirvinnustundar.
Talan 1,62 er fundin með því að margfalda 156 stundir miðað við
meðalmánuð (m.v. vikulega vinnuskyldu sem er 36 virkar vinnustundir) með
reiknistuðli yfirvinnu 2 sem er 1,0385%.
2.3.9
Þegar starfsmenn vistheimila ferðast með og annast vistmenn á
ferðalögum, skal hver ferðadagur reiknaður allt að 12 klst. Vinnutíma
umfram reglubundna vinnuskyldu greiðist sem yfirvinna. Vegna
næturgistingar á ferðalögum með vistmönnum greiðast að auki 2 klst.
2.4.1
Gildissvið o. fl.
Hvað varðar gildissvið, hvíldartíma, vinnuhlé og fleira vísast til
samnings ASÍ, BHM, BSRB og KÍ og samninganefndar ríkisins,
Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga frá 23. janúar 1997, um
ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma, sem fylgir kjarasamningi
þessum sem fylgiskjal og telst hluti hans.
Í þessu sambandi vísast jafnframt til leiðbeininga samráðsnefndar um
skipulag vinnutíma, dags. 16. febrúar 2001. Samráðsnefnd þessi er skipuð
samkvæmt 14. gr. framangreinds samnings og er henni jafnframt falið að
fjalla um ágreiningsmál sem upp kunna að koma vegna þeirra málefna sem
þar er fjallað um.
2.4.2
Daglegur hvíldartími - Um skipulag vinnutíma
Vinnutíma skal haga þannig að á 24 stunda tímabili, reiknað frá
skipulögðu/venjubundnu upphafi vinnudags starfsmanns, fái starfsmaður
a.m.k. 11 klst. samfellda hvíld. Verði því við komið, skal dagleg hvíld
ná til tímabilsins frá kl. 23:00 til 06:00.
Óheimilt er að skipuleggja vinnu þannig að vinnutími á 24 klst. tímabili
fari umfram 13 klst.
Skipulagt eða venjubundið upphaf vinnudags -- skýring
Sé skipulagt upphaf vinnudags t.d. kl. 8:00, skal miða við það tímamark.
Hafi starfsmaður á hinn bóginn fastan vinnutíma sem hefst t.d. kl.
20:00, skal sólarhringurinn miðaður við það tímamark. Í vaktavinnu er
eðlilegt að miða upphaf vinnudags við merktan vinnudag á
vaktskrá/varðskrá. Sé ekki um merktan vinnudag að ræða, t.d. aukavakt í
vaktafríi, miðast upphafið við tímamörk síðasta merkta vinnudags.
Starfsmaður á rétt á a.m.k. 15 mínútna hléi ef daglegur vinnutími hans
er lengri en 6 klst. Kaffi- og matarhlé teljast hlé í þessu sambandi.
2.4.3
Frávik frá daglegri lágmarkshvíld
2.4.3.1 Vaktaskipti
Á skipulegum vaktaskiptum er heimilt að stytta samfellda lágmarkshvíld
starfsmanna í allt að 8 klst. Þetta á t.d. við þegar starfsmaður skiptir
af morgunvakt yfir á næturvakt samkvæmt skipulagi vaktskrár.
Fráviksheimild þessi frá 11 klst. lágmarkshvíld á hins vegar ekki við
þegar starfsmaður lýkur yfirvinnu og fer yfir á reglubundna vakt og
öfugt.
Þar sem hér er um frávik frá meginreglunni um 11 klst. samfellda hvíld
að ræða, verður að gera þá kröfu til vaktkerfis að það sé skipulagt
þannig að skipti milli mismunandi tegunda vakta séu sem sjaldnast á
vaktahring og að jafnaði reyni ekki á frávik þetta oftar en einu sinni í
viku. Vinnan skal því skipulögð með sem jöfnustum hætti.
2.4.3.2 Sérstakar aðstæður
Við sérstakar aðstæður er heimilt að stytta samfellda lágmarkshvíld í
allt að
8 klst. og lengja vinnulotu í allt að 16 klst., þ.e.a.s. við
ófyrirsjáanleg atvik þegar bjarga þarf verðmætum. Ennfremur þegar
almannaheill krefst þess og/eða halda þarf uppi nauðsynlegri
heilbrigðis- eða öryggisþjónustu.
Sé heimildum til frávika frá daglegum hvíldartíma skv. þessum lið beitt,
skal starfsmaður fá samsvarandi hvíld í staðinn. Í beinu framhaldi af
slíkri vinnulotu skal veita starfsmanni 11 klst. hvíld á óskertum launum
sem hann annars hefði fengið.
2.4.3.3 Truflun á starfsemi vegna ytri aðstæðna
Ef truflun verður á starfsemi vegna ytri aðstæðna, svo sem vegna veðurs
eða annarra náttúruafla, slysa, orkuskorts, bilana í vélum eða öðrum
búnaði eða annarra slíkra ófyrirséðra atvika, má víkja frá ákvæðum um
daglega lágmarkshvíld að því marki sem nauðsynlegt er til að koma í veg
fyrir verulegt tjón þar til regluleg starfsemi hefur komist á að nýju.
Um er að ræða tilvik sem ekki verða séð fyrir. Rétt er að kalla annan
starfsmann til vinnu til að leysa þann starfsmann af sem ekki hefur náð
tilskilinni hvíld, sé þess nokkur kostur.
2.4.4
Vikulegur hvíldardagur
Á hverju 7 daga tímabili skal starfsmaður fá a.m.k. einn vikulegan
hvíldardag sem tengist beint daglegum hvíldartíma og skal við það miðað
að vikan hefjist á mánudegi. Starfsmaður á þannig að fá 35 klst.
samfellda hvíld einu sinni í viku.
Að svo miklu leyti sem því verður við komið, skal vikulegur hvíldardagur
vera á sunnudegi og starfsmaður fá frí á þeim degi. Þó má stofnun með
samkomulagi við starfsmenn sína fresta vikulegum hvíldardegi þar sem
sérstakar ástæður gera slík frávik nauðsynleg, þannig að í stað vikulegs
hvíldardags komi tveir samfelldir hvíldardagar á hverjum tveimur vikum.
Sé sérstök þörf á að skipuleggja vinnu þannig að vikulegum hvíldardegi
sé frestað, skal haga töku hvíldardaga þannig að teknir séu tveir
hvíldardagar saman.
2.4.5
Frítökuréttur
2.4.5.1 Almenn skilyrði frítökuréttar
Hafi stjórnandi metið það svo að brýn nauðsyn sé til að starfsmaður mæti
til vinnu áður en 11 klst. lágmarkshvíld er náð, skapast frítökuréttur,
1 1/2 klst.
(í dagvinnu) fyrir hverja klukkustund sem hvíldin skerðist. Ávinnsla
frítökuréttar einskorðast ekki við heilar stundir. Starfsmaður á ekki að
mæta aftur til vinnu fyrr en að aflokinni 11 klst. hvíld nema hann hafi
sérstaklega verið beðinn um það. Mæti starfsmaður eigi að síður áður en
hann hefur náð hvíldinni, ávinnur hann sér ekki frítökurétt.
2.4.5.2 **Samfelld hvíld rofin með útkalli - Frítökuréttur miðað við
lengsta hlé.**
Ef hvíld er rofin einu sinni eða oftar innan 24 stunda tímabils miðað
við skipulagt/venjubundið upphaf vinnudags starfsmanns, skal bæta það
sem vantar upp á að 11 klst hvíld náist, miðað við lengsta hlé innan
vinnulotu, með frítökurétti, 1 1/2 klst. (dagvinnu) fyrir hverja
klukkustund sem vantar upp á
11 klst. hvíld.
2.4.5.3 Vinna umfram 16 klst.
Hafi starfsmaður unnið samtals meira en 16 klst. á einum sólarhring,
þ.e. hverjum 24 klst., miðað við skipulagt/venjubundið upphaf vinnudags
starfsmanns, án þess að ná 8 klst. samfelldri hvíld, skal starfsmaður
undantekningarlaust fá 11 klst. samfellda hvíld að lokinni vinnu, án
frádráttar á þeim launum sem hann annars hefði fengið. Frítökuréttur,
1,5 klst. (dagvinna) safnast upp fyrir hverja klst. sem unnin var umfram
16 klst.
2.4.5.4 Aukinn frítökuréttur vegna samfelldrar vinnu umfram 24 klst.
Í þeim sérstöku undantekningartilvikum að starfsmaður vinni samfellt
fullar
24 stundir, skal frítökuréttur aukast þannig að hver heil stund umfram
24 veitir frítökurétt sem er 1,8% lengri en sá frítökuréttur sem næsta
stund á undan gaf.
2.4.5.5 Vinna á undan hvíldardegi
Vinni starfsmaður skv. ákvörðun yfirmanns það lengi á undan hvíldardegi
að ekki náist 11 klst. hvíld miðað við venjubundið upphaf vinnudags eða
vaktar (sjá skýringaramma í gr. 2.4.2), skal starfsmaður mæta
samsvarandi síðar við upphaf næsta reglubundna vinnudags, án frádráttar
á þeim launum sem hann annars hefði fengið, ella safnast upp
frítökuréttur, 1½ klst. í dagvinnu fyrir hverja klukkustund sem hvíldin
skerðist.
2.4.5.6 Upplýsingar um frítökurétt á launaseðli
Uppsafnaður frítökuréttur skal koma fram á launaseðli og hann skal
veittur í hálfum eða heilum dögum.
2.4.5.7 Frítaka
Frítökuréttur skal veittur í samráði við starfsmann enda sé uppsafnaður
frítökuréttur a.m.k. fjórar stundir og skal frítaka ekki veitt í styttri
lotum en það. Leitast skal við að veita frí svo fljótt sem auðið er eða
með reglubundnum hætti til að koma í veg fyrir að frí safnist upp.
2.4.5.8 Greiðsla hluta frítökuréttar
Heimilt er að greiða út 1/2 klst. (í dagvinnu) af hverri 1 1/2 klst. sem
starfsmaður hefur áunnið sér í frítökurétt, óski hann þess.
2.4.5.9 Uppgjör við starfslok
Við starfslok skal ótekinn frítökuréttur gerður upp með sama hætti og
orlof. Frítökuréttur fyrnist ekki.
2.4.6
**Æðstu stjórnendur og aðrir þeir sem ráða vinnutíma sínum
sjálfir**
Aðilar þessir geta eðli málsins samkvæmt ekki áunnið sér frítökurétt,
sbr. einnig gildissvið vinnuverndarákvæða um þá í tilskipun
Evrópusambandsins nr. 93/104/EC, 1. tölul., a-liðar, 17.gr. og 4.mgr.
1.gr. framangreinds samnings aðila vinnumarkaðarins dags. 23.01.1997.
2.5.1
Með bakvakt er átt við að starfsmaður sé ekki við störf en
reiðubúinn til að sinna útkalli. Það telst ekki bakvakt ef starfsmaður
dvelst á vinnustað að beiðni yfirmanns. Um greiðslu fyrir bakvakt sjá
gr. 1.5.2.
2.5.2
Starfsmaður á rétt á fríi í stað greiðslu álags fyrir bakvakt. 20
mínútna frí jafngildir 33,33% vaktaálagi, 27 mínútna frí jafngildir 45%
vaktaálagi,
72 mínútna frí jafngildir 120% vaktaálagi og 99 mínútna frí jafngildir
165% vaktaálagi.
2.5.3
Bakvaktargreiðsla fellur niður þann tíma sem yfirvinnukaup er
greitt.
2.5.4
Fyrir reglubundna bakvakt skal veita frí sem svarar mest 80 klst.
fyrir 1200 klst. á bakvakt. Frí þetta skal veita hlutfallslega miðað við
starfshlutfall og starfstíma. Bakvaktafrí er að hámarki 80 stundir vegna
ákvæðis 2.5.4 þótt bakvaktastundir séu fleiri en 1200. Leitast skal við
að taka bakvaktafrí samhliða ávinnslu og svo fljótt sem unnt er.
2.5.5
Unnar stundir á bakvöktum skulu ekki dregnar frá þegar
bakvaktarstundir á ári eru taldar, sbr. gr. 2.5.4.
2.5.6
Leyfi skv. gr. 2.5.4 má veita hvenær árs sem er en ekki er heimilt
að flytja það milli ára.
Heimilt er að semja við starfsmann um greiðslu í stað fría samkvæmt
grein 2.5.4. Greiðsla þessi miðast við tímakaup í dagvinnu samkvæmt
gr.1.3.1.
2.5.7
Heimilt er með samkomulagi starfsmanna og forráðamanna stofnunar
og með skriflegu samþykki samningsaðila að semja um annað fyrirkomulag
greiðslu fyrir bakvaktir en að framan greinir. T.d. er heimilt að semja
um ákveðinn fjölda klukkustunda fyrir bakvakt án tillits til
tímalengdar. Ef samið er um aðrar bakvaktagreiðslur en um getur í gr.
1.5.2
skal, að teknu tilliti til útkallatíðni og lengdar útkalla á
tilteknu viðmiðunartímabili, semja um að bakvaktagreiðslur falli ekki
niður í útköllum, að hluta til eða öllu leyti.
2.6.1
Þeir sem vinna á reglubundnum vöktum, skulu fá álag fyrir unnin
störf á þeim tíma er fellur utan venjulegs dagvinnutímabils skv. gr.
2.2.1.
*Ef skipulagður vinnutími starfsmanns er að jafnaði 20% eða meira utan
dagvinnumarka telst hann vaktavinnumaður.*
2.6.2
Þar sem unnið er á reglubundnum vöktum skal leggja fram drög að
vaktskrá, sem sýnir væntanlegan vinnutíma hvers starfsmanns, sex vikum
áður en hún tekur gildi. Endanleg vaktskrá skal lögð fram mánuði áður en
fyrsta vakt samkvæmt skránni hefst, nema samkomulag sé við starfsmann um
skemmri frest.
Krefjist starfsemi stofnunar breytingar á vaktskrá skal hún gerð með
samþykki starfsmanns. Ef vaktskrá er breytt með skemmri fyrirvara en 24
klst., skal viðkomandi starfsmanni greitt breytingargjald sem nemur 2%
af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi. Sé fyrirvarinn 24--168
klst. (ein vika) skal greiða breytingargjald sem nemur 1,3% af
mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi. Hér er eingöngu átt við
breytingu á skipulagðri vakt en ekki aukavakt.
*Taki starfsmaður vakt umfram vinnuskyldu, með minna en 24. klst.
fyrirvara á tímabilinu kl. 17:00-24:00 á föstudögum, kl. 24:00-08:00
mánudaga til föstudaga, kl. 00:00-24:00 laugardaga, sunnudaga og
sérstaka frídaga, sbr. gr. 2.1.4.2 miðað við 8 klst. vakt, skal greiða
breytingargjald sem nemur 1,3% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og
þrepi og hlutfallslega fyrir lengri eða styttri vaktir.*
2.6.3
Við samningu vaktskrár skal þess gætt að helgidagavinna skiptist
sem jafnast á starfsmenn.
2.6.4
Að jafnaði skulu vaktir vera á bilinu 4 - 10 klst. Heimilt er,
sbr. gr. 2.1.2, að semja um aðra tímalengd vakta. Ef gert er ráð fyrir
að starfsmaður taki vaktir sem eru styttri en 8 klst. skal kveðið
sérstaklega á um það í ráðningarsamningi. Starfsfólk í 80%
starfshlutfalli eða hærra hefur forgang á 8 klst. vaktir.
2.6.5
Þar sem nauðsyn er á samvistartíma við vaktaskipti, skal fella
hann inn í hinn reglulega vinnutíma.
2.6.6
Skipulagi vaktavinnu skal haga þannig að starfsmenn fái að jafnaði
tvo samfellda frídaga í viku.
2.6.7
Árleg vinnuskylda vaktavinnufólks sem vinnur á reglubundnum vöktum
skal að jafnaði vera sú sama og hjá dagvinnufólki. Vinnuskylda
vaktavinnufólks lækkar því um 7,2 vinnuskyldustundir miðað við fullt
starf vegna sérstakra frídaga og stórhátíðardaga, skv. gr. 2.1.4.2, sem
falla á mánudag til föstudags að undanskildum aðfangadegi og gamlársdegi
sem skal vera 3,6 klukkustundir fyrir hvorn dag miðað við fullt starf.
Að jafnaði skal taka út lækkun á vinnuskilum vegna sérstakra frídaga
innan tímabils vaktskrár. Óski starfsmaður eftir því að safna upp
vinnuskilum vegna sérstakra frídaga og stórhátíðardaga skal hann
tilkynna sínum yfirmanni um það fyrir framlagningu vaktskrár þegar
ávinnsla á sér stað. Yfirmanni er skylt að verða við óskum starfsmanns
enda verði því viðkomið vegna starfsemi stofnunar. Í þeim tilvikum þar
sem vinnuskil vegna sérstakra frídaga og stórhátíðardaga flytjast á
milli mánaða skal halda utan um það og starfsfólk upplýst reglulega.
Vinna sem fellur á sérstaka frídaga og stórhátíðardaga skal auk þess
launa með álagi skv. gr. 1.5.1.
Með reglubundnum vöktum er átt við vaktir sem skipulagðar eru alla daga
að meðtöldum sérstökum frídögum og stórhátíðardögum. Í þeim tilvikum þar
sem stofnun er lokuð á sérstökum frídegi eða stórhátíðardegi fær
starfsmaður sem á vakt þann dag skv. skipulagðri vaktskrá frí sem
vaktinni nemur í stað lækkunar vinnuskyldu og að teknu tilliti til
lengdar vaktar.
2.6.8
Vægi vinnuskyldustunda vaktavinnufólks
Vinnuskyldustundir vaktavinnufólks utan dagvinnumarka skv. skipulagðri
vaktskrá og innan vinnutímaskyldu hafa ólíkt vægi við útreikning
vinnuskila. Vinnuskyldustundir sem greiddar eru með 33,33% og 55%
vaktaálagi skv. gr. 1.5.1 hafa vægið 1,05 þannig að fyrir hverjar 60
mínútur reiknast 63 mínútur. Vinnustundir sem greiddar eru með 65% og
75% vaktaálagi skv. gr. 1.5.1 hafa vægið 1,2 þannig að fyrir hverjar 60
mínútur reiknast 72 mínútur. Þrátt fyrir framangreint skulu vinnuskil
starfsmanns í fullu starfi aldrei fara undir 32 vinnustundir á viku að
jafnaði (að meðaltali á launatímabili) og hlutfallslega miðað við
starfstíma og starfshlutfall.
Vinnuskyldustundir sem greiddar eru með 120% vaktaálagi skv. gr. 1.5.1
hafa vægið 1,05 á tímabilinu 08:00-24:00 og vægið 1,2 á tímabilinu
00:00-08:00. Vinnuskyldustundir sem greiddar eru með 165% vaktaálagi
hafa vægið 1,20.
2.6.9
Vaktahvati
Starfsfólk sem vinnur vaktavinnu og uppfyllir skilyrði greinarinnar
fær greiddan vaktahvata með eftirfarandi hætti. Vaktahvati greiðist
sem hlutfall greiddra mánaðarlauna vegna fjölbreytileika og fjölda
vakta á þremur síðustu uppgjörstímabilum samkvæmt skipulögðum vöktum
innan vinnutímaskyldu. Lágmarksfjöldi vinnuskyldustunda á því tímabili
utan dagvinnumarka (á 33,33%, 55%, 65% og 75% álagi) eru 126
vinnuskyldustundir. Vaktir eru flokkaðar í fjórar tegundir; dagvaktir,
kvöldvaktir (33,33% álag), næturvaktir á virkum dögum (65% álag) og
helgarvaktir (55% og 75% álag). Þá skal lágmarksfjöldi
vinnuskyldustunda í hverri tegund vakta vera 45 vinnuskyldustundir.
Starfsmaður þarf að standa vaktir í tveimur til fjórum tegundum vakta,
14 sinnum eða oftar að meðaltali á uppgjörstímabili til þess að njóta
vaktahvata.
Þegar starfsfólk hefur störf reiknast vaktahvati fyrir eitt
uppgjörstímabil á fyrsta og öðrum mánuði í starfi þannig að
lágmarksfjöldi stunda utan dagvinnumarka eru 42 og lágmarksfjöldi
vinnuskyldustunda í hverri tegund vakta eru 15. Eftir þrjá mánuði í
starfi reiknast vaktahvati skv. 1. mgr. Það sama á við þegar samið er
um breytingar á starfshlutfalli sem nema 40% eða meira til hækkunar
eða lækkunar.
{width="3.0444444444444443in"
height="1.270138888888889in"}Hlutfall vaktahvata miðast við
eftirfarandi töflu:
*Vaktahvati reiknast miðað við þrjú síðustu uppgjörstímabil. Með
uppgjörstímabili er átt við uppgjörstímabil breytilegra launa á
starfsstaðnum. Vaktahvati greiddur 1. apríl miðast því við
uppgjörstímabil til greiðslu í útborgun launa 1. febrúar, 1. mars
og 1. apríl og vaktahvati greiddur 1. maí við launatímabil til
greiðslu 1. mars, 1. apríl og 1. maí.*
2.6.10
Starfsmenn sem vinna reglubundna vaktavinnu, skulu undanþegnir
næturvöktum ef þeir óska er þeir hafa náð 55 ára aldri.
3. Matar- og kaffitímar, fæði og mötuneyti
3.1.1
Starfsmönnum er heimilt að neyta matar og drykkja við vinnu sína
þegar því verður við komið starfsins vegna og slík hlé eru hluti af
virkum vinnutíma.
3.1.2
Heimilt er með samkomulagi stjórnenda stofnunar og einfalds
meirihluta þeirra starfsmanna sem málið varðar að ákvarða dagleg hlé sem
eru á forræði starfsmanna. Ákvörðuð lengd þeirra lengir daglega viðveru
starfsmanna samsvarandi enda teljast slík hlé ekki til virks vinnutíma.
Á þeim stofnunum þar sem hlé eru ákvörðuð með slíku samkomulagi og unnið
er í hléinu að beiðni yfirmanns er greitt fyrir það með yfirvinnukaupi.
Þeir einstaklingar og/eða starfahópar sem fyrir gildistöku þessa
samnings fengu að jafnaði reglubundið greiðslur skv. gr. 3.2. í eldri
samning, skulu halda sambærilegum greiðslum sbr. bókun 2.
3.2.1
Starfsmenn sem eru við störf á föstum vinnustað, skulu hafa aðgang
að matstofu eftir því sem við verður komið. Matstofa telst sá staður í
þessu tilviki þar sem hægt er að bera fram heitan og kaldan mat,
aðfluttan eða eldaðan á staðnum. Húsakynni og aðstaða skulu vera í
samræmi við kröfur viðkomandi heilbrigðisyfirvalda. Starfsmenn greiði
efnisverð matarins en annar rekstrarkostnaður greiðist af viðkomandi
stofnun.
3.2.2
Á þeim vinnustöðum þar sem ekki er starfrækt mötuneyti, skal reynt
að tryggja starfsmönnum aðgang að nærliggjandi mötuneyti á vegum
vinnuveitanda, eða látinn í té útbúnaður til að flytja matinn á matstofu
vinnustaðar þannig að starfsmönnum sé flutningur matarins að
kostnaðarlausu.
3.2.3
Ef stofnunin kaupir mat hjá öðrum aðila en greint er í gr. 3.2.2,
skulu starfsmenn greiða fyrir sambærilegan mat upphæð er svarar til
meðaltalsverðs er starfsmenn greiða í mötuneyti Stjórnarráðsins.
Meðaltalsverð fæðis er 671 kr. frá 1. nóv. 2015. Upphæð meðaltalsverðs
er birt á vef Fjársýslu ríkisins (www.fjs.is) undir liðnum laun og
launatöflur.
3.2.4
Starfsmaður sem hefur ekki aðgang að matstofu en ætti að hafa það
skv. gr. 3.2.1 eða er á vakt þegar matstofa vinnustaðar er ekki opin,
skal fá það bætt með fæðispeningum sem nema 639 kr. enda sé dagleg
vinnuskylda starfsmanns 6 klukkustundir eða lengri.
3.2.5
Upphæð fæðispeninga breytist á þriggja mánaða fresti í samræmi við
matvörulið vísitölu neysluverðs (01 Matur og drykkjarvörur) með vísitölu
maí mánaðar 2024 sem grunnvísitölu (236,6 stig miðað við undirvísitölur
frá 2008).
3.2.6
Þar sem mötuneyti er á vinnustöðum, skal fulltrúi starfsmanna sem
kaupa þar fæði, tilnefna 2 trúnaðarmenn úr sínum hópi til þess að
fylgjast með rekstri mötuneytisins og fá aðgang að reikningum þess.
3.3.1
Starfsmönnum sem gert er skylt að matast með skjólstæðingum sínum
og aðstoða þá við borðhaldið, skulu undanþegnir því að greiða fyrir þær
máltíðir enda sé þeim ekki umbunað fyrir það með öðrum hætti svo sem
styttri vinnutíma eða greiðslu. Starfsmaður skal í slíkum tilvikum hafa
sambærilega aðstöðu og sama fæði og skjólstæðingar.
Sjá kjarasamning fyrir nánari upplýsingar.
Sjá kjarasamning fyrir nánari upplýsingar.
4. Orlof
4.1.1
Orlof skal vera 30 dagar (216 stundir miðað við 36 virkar
vinnustundir á viku) miðað við fullt starf. Ávinnsla orlofs skal vera
hlutfallsleg miðað við starfshlutfall og starfstíma starfsmanns.
4.2.1
Starfsmaður skal fá 13,04% orlofsfé á yfirvinnu og álagsgreiðslur
skv. samningi þessum.
4.2.2
Orlofsuppbót á samningstímanum verður sem hér segir:
Á árinu 2025 60.000 kr.
Á árinu 2026 62.000 kr.
Á árinu 2027 64.000 kr.
Hinn 1. júní ár hvert skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl
næst á undan, fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, er miðast
við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað
við starfshlutfall og starfstíma.
Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir
a.m.k. 3 mánaða/13 vikna samfellt starf á orlofsárinu, skal hann fá
greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og
starfshlutfall. Sama gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna
veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða vegna
fæðingarorlofs. Orlofsuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum
skv. öðrum ákvæðum samningsins. Á orlofsuppbót reiknast ekki orlofsfé.
Áunnin orlofsuppbót skal gerð upp samhliða starfslokum.
4.3.1
Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl.
4.3.2
Ef breytingar verða á starfshlutfalli á orlofsárinu þarf að taka
tillit til þess í launaútreikningi við töku orlofsins.
4.4.1
Tímabil sumarorlofs er frá 1. maí til 15. september.
4.4.2
Starfsmaður á rétt á að fá 20 daga orlof, þar af 15 daga samfellda
á sumarorlofstímabilinu og allt að fullu orlofi á sama tíma, verði því
við komið vegna starfa stofnunar.
4.5.1
Yfirmaður ákveður, í samráði við starfsmann, hvenær orlof skuli
veitt. Yfirmanni er skylt að verða við óskum starfsmanna um hvenær orlof
skuli veitt enda verði því við komið vegna starfsemi stofnunar. Ákvörðun
um sumarorlof skal liggja fyrir svo fljótt sem verða má og eigi síðar en
- mars og tilkynnt starfsmanni með sannanlegum hætti, svo sem í
tímaskráningarkerfi stofnunar, nema sérstakar aðstæður hamli.
4.5.2
Sé orlof eða hluti orlofs tekið utan sumarorlofstímabils, að
skriflegri beiðni yfirmanns, skal sá hluti orlofsins lengjast um 25%.
4.6.1
Flutningur orlofs milli ára er óheimill, sbr. þó grein 4.6.2 og
4.6.3.
4.6.2
Ef starfsmaður tekur ekki orlof eða hluta af orlofi, að skriflegri
beiðni yfirmanns, getur orlofið geymst til næsta orlofsárs, enda hafi
starfsmaður ekki lokið orlofstöku á orlofsárinu. Sama gildir um
starfsmann í fæðingarorlofi. Í slíkum tilvikum getur uppsafnað orlof þó
aldrei orðið meira en 60 dagar.
Upplýsingar um stöðu þegar áunnins og ótekins orlofs skulu vera
starfsmönnum aðgengilegar í tímaskráningarkerfi stofnunar.
4.6.3
Veikist starfsmaður í orlofi, telst sá tími sem veikindum nemur
ekki til orlofs, enda sanni starfsmaður með læknisvottorði að hann geti
ekki notið orlofs.
Tilkynna skal yfirmanni án tafar með sannanlegum hætti ef um veikindi
eða slys í orlofi er að ræða.
Í slíkum tilvikum er heimilt að flytja ótekið orlof til næsta árs.
4.6.4
Komi starfsmaður úr öðru starfi án þess að hafa þar notið áunnins
orlofs, þá á hann rétt á launalausu orlofi þar til 30 daga orlofi er
náð.
4.6.5
Hafi starfsmaður sem átti gjaldfallið orlof þann 1. maí 2020, allt
að 60 dagar, ekki nýtt þá daga fyrir 30. apríl 2023, falla þeir dagar
niður sem eftir standa.
4.7.1
Greiða skal dánarbúi áunninn orlofsrétt látins starfsmanns.
4.8.1
Launagreiðandi greiðir sérstakt gjald í orlofssjóð Eflingar -
stéttarfélags. Gjald þetta skal nema 0,5% af heildarlaunum félagsmanna í
þjónustu ríkisins. Gjaldið skal greiða mánaðarlega eftir á skv.
útreikningi launagreiðanda.
Sjá kjarasamning fyrir nánari upplýsingar.
5. Ferðir og gisting
5.1.1
Kostnaður vegna ferðalaga innanlands á vegum vinnuveitanda skal
greiðast eftir reikningi, enda fylgi fullnægjandi frumgögn. Sama gildir
ef hluti vinnudags er unninn svo langt frá föstum vinnustað að
starfsmaður þarf að kaupa sér fæði utan heimilis eða fasts vinnustaðar.
5.1.2
Starfsmenn skulu fá fyrirframgreiðslu áætlaðs ferðakostnaðar.
5.1.3
Um uppgjör ferðakostnaðar, þar með talið akstursgjald, fer eftir
sömu reglum og um uppgjör yfirvinnu.
5.2 Dagpeningar innanlands
5.2.1
Greiða skal gisti- og fæðiskostnað með dagpeningum, sé um það
samkomulag eða ekki unnt að leggja fram reikninga.
5.2.2
Dagpeningar á ferðalögum innanlands skulu ákveðnir af nefnd skv.
gr. 5.7.
5.2.3
Sé gist í húsnæði í eigu eða á vegum stofnunar, greiðast ekki
dagpeningar fyrir gistingu nema um annað sé samið í hvert sinn.
5.2.4
Samkomulag er milli aðila um að dagpeningum ferðakostnaðarnefndar
fyrir fæðiskostnað skuli skipt í 8 einingar fyrir allar máltíðir dagsins
þannig:
- morgunkaffi 1 ein. 1.400 kr.
- hádegisverður 2 ein. 2.800 kr.
- síðdegiskaffi 1 ein. 1.400 kr.
- kvöldverður 2 ein. 2.800 kr.
- kvöldkaffi 1 ein. 1.400 kr.
Ofangreindar fjárhæðir gilda frá 1. nóvember 2015
Dagpeningar skv. grein 5.2.4 er umsamin endurgreiðsla á útlögðum
kostnaði. Þar af leiðir að á vinnustöðum þar sem kaffitímar hafa verið
felldir niður til styttingu á daglegum vinnutíma, koma þeir kaffitímar
ekki til talningar á dagpeningaeiningum.
5.3.1
Fyrirfram skal af stofnun og starfsmanni ákveðið hvaða háttur á
greiðslu ferðakostnaðar skal viðhafður hverju sinni. Í hverju einstöku
ferðalagi má einungis hafa einn greiðsluhátt, þ.e. greiðslu skv.
framlögðum reikningum eða greiðslu dagpeninga.
5.4.1
Starfsmaður skal sækja vinnu til fasts ráðningarstaðar á eigin
vegum og í tíma sínum.
5.4.2
Frá grein 5.4.1 eru eftirtalin frávik:
5.4.2.1 Starfsmanni skal séð fyrir ferð eða honum greiddur
ferðakostnaður að og frá vinnustað ef öll eftirfarandi skilyrði eru
uppfyllt:
- Að starfsmaður hefji eða ljúki vinnu á þeim tímum sem strætisvagnar
> ganga ekki.
- Að heimili starfsmanns sé lengra en 1,5 km (loftlína) frá vinnustað.
- Að vinnustaður sé innan leiðakerfis strætisvagna. Með leiðakerfi er
> átt við skipulagðar ferðir þar sem gert er ráð fyrir að minnsta
> kosti einni ferð á klukkustund innan hvers skilgreinds
> þéttbýliskjarna í viðkomandi tilviki.
- Að ekki sé lengra en 1,5 km frá biðstöð að vinnustað.
Starfsmanni er ekki séð fyrir ferð eða honum greiddur ferðakostnaður
fyrir lengri vegalengd en sem nemur 15 km (loftlína) frá vinnustað.
5.4.2.2 Ef ákvæði greinar 5.4.2.1 eiga ekki við, en vinnustaður er innan
þéttbýlis, skal starfsmanni séð fyrir ferðum að og frá vinnustað innan
15 km fjarlægðar (loftlína), en þó utan 1,5 km (loftlína), þegar
starfsmaður hefur eða lýkur vinnu á tímabilinu frá kl. 00:00 til kl.
07:00 virka daga og frá kl. 00:00 til kl. 12:00 á almennum eða á
sérstökum frídögum skv. gr. 2.1.4.2 og 2.1.4.3.
5.4.2.3 Þær stofnanir sem staðsettar eru a.m.k. 1,5 km utan ytri marka
næsta þéttbýlis skulu, í stofnanasamningi skv. kafla 11, semja um
greiðslu ferðakostnaðar fyrir þá starfsmenn sem ekki búa á staðnum.
5.4.2.4 Heimilt er í stofnanasamningi skv. kafla 11 að semja nánar um
hvernig ákvæði kafla þessa skulu framkvæmd í einstökum tilfellum, svo og
ef um sérstakar aðstæður er að ræða til dæmis dvöl í óbyggðum, á sjó eða
langdvöl á ferðum.
5.5.1
Þegar starfsmaður fer utan að frumkvæði vinnuveitanda og á vegum
hans skulu greiðslur vegna slíks óhagræðis vera með eftirfarandi hætti:
Sé brottför flugs á virkum degi fyrir kl. 10:00 og/eða heimkoma eftir
kl. 15:00 skal starfsmaður fá greiðslu sem nemur þremur álagsstundum á
33,33% álagi skv. gr. 1.5.1 fyrir hvort tilvik.
Á almennum og sérstökum frídögum skal samsvarandi greiðsla nema sex
álagsstundum á 55% álagi skv. gr. 1.5.1, án tillits til þess hvenær dags
flugið er.
Heimilt er að semja um frítíma í stað greiðslu ferðatíma þannig að
33,33% álag jafngildi 20 mínútna fríi, 55% álag jafngildi 33 mínútna
fríi.
5.6.1
Ferðakostnaður á ferðalögum erlendis annar en fargjöld greiðist
með dagpeningum sem skulu ákveðnir af nefnd skv. gr. 5.7.
5.6.2
Af dagpeningum á ferðalögum erlendis ber að greiða allan
venjulegan ferðakostnað, annan en fargjöld, svo sem kostnað vegna ferða
að og frá flugvöllum, fæði, húsnæði, minniháttar risnu og hvers konar
persónuleg útgjöld.
5.7.1
Dagpeningar vegna námskeiða, þjálfunar - og eftirlitsstarfa skulu
ákveðnir af nefnd skv. gr. 5.7.
5.8.1
Fjárhæðir dagpeninga fyrir gisti- og fæðiskostnað, svo og
endurgjalds fyrir afnot af einkabifreiðum starfsmanna samkvæmt samningi
þessum, eru þær sömu og ákveðnar eru af ferðakostnaðarnefnd ríkisins.
6. Aðbúnaður og hollustuhættir
6.1.1
Allir starfsmenn skulu njóta réttinda skv. lögum nr. 46/1980 um
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, enda falli starf þeirra
ekki undir önnur lög.
6.2.1
Vinnustaður skal þannig úr garði gerður, að þar sé gætt fyllsta
öryggis og góðs aðbúnaðar og hollustuhátta, sbr. VI. kafla laga nr.
46/1980.
Frá 1. júní 2020 bætist ný grein við kafla 6 sem hljóðar svo:
6.2.2
Gert er ráð fyrir því að starfsfólk geti sinnt reglubundnum
störfum sínum innan hefðbundins vinnudags. Mikilvægt er að stofnanir
setji sér viðverustefnu þar sem m.a. er skerpt á skilum milli vinnu og
einkalífs. Í þeim tilvikum sem starfsfólk þarf að sinna vinnu utan
hefðbundins vinnutíma skal það koma fram í starfslýsingu og starfskjörum
viðkomandi. Að öðrum kosti skal greiða sérstaklega fyrir vinnuframlag
sem yfirmaður krefst af starfsmanni utan hefðbundins vinnutíma.
6.3.1
Algengustu lyf og sjúkragögn skulu vera fyrir hendi á vinnustað
til nota við fyrstu aðgerð í slysatilfellum. Lyf og sjúkragögn skulu
vera í vörslu og á ábyrgð verkstjóra og trúnaðarmanna.
6.4.1
Á vinnustöðum skal vera fyrir hendi til afnota tæki og
öryggisbúnaður, sem Vinnueftirlit ríkisins telur nauðsynlegan.
6.4.2
Skipa skal öryggisverði, öryggistrúnaðarmenn og öryggisnefndir í
samræmi við II. kafla laga nr. 46/1980.
6.5.1
Varast skal eftir föngum, að starfsmaður sé einn við störf þar sem
slysahætta er mikil.
Um þetta atriði skal semja þar sem það á við.
6.6.1
Komi fyrir slys eða eitrun á vinnustað skal fyrirsvarsmaður
viðkomandi stofnunar tilkynna það til lögreglu eða Neyðarlínu og
Vinnueftirlits ríkisins símleiðis eða með öðrum hætti svo fljótt sem
verða má og eigi síðar en innan sólarhrings.
6.6.2
Að öðru leyti skal farið eftir reglum nr. 920/2006, um skipulag og
framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum.
6.6.3
Launagreiðandi skal einnig tilkynna Tryggingastofnun ríkisins,
slysatryggingadeild, um slys sem verða á vinnustað eða beinni leið til
eða frá vinnu, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Á meðan starfsmaður
fær greidd slysalaun frá launagreiðanda af völdum óvinnufærni, fær
launagreiðandi greidda slysadagpeninga frá slysatryggingadeild.
6.7.1
Á vinnustöðum þar sem sérstök hætta er á heilsutjóni starfsmanna
getur viðkomandi stéttarfélag óskað sérstakrar læknisskoðunar á
starfsfólki. Telji sérmenntaður embættislæknir Vinnueftirlits ríkisins
slíka skoðun nauðsynlega skal hún framkvæmd eins fljótt og unnt er.
7. Tryggingar
7.1.1
Starfsmenn skulu slysatryggðir allan sólarhringinn fyrir dauða eða
vegna varanlegrar örorku. Um trygginguna gilda mismunandi bótafjárhæðir
og tryggingaskilmálar eftir því hvort starfsmaður verður fyrir slysi í
starfi eða utan starfs. Um skilmála trygginga þessara gilda sérstakar
reglur, nr. 30/1990 og nr. 31/1990 sem fjármálaráðherra hefur sett.
7.1.2
Dánarslysabætur eru:
- Ef hinn látni var ógiftur og lætur ekki eftir sig barn undir 18 ára
aldri og hefur ekki séð fyrir foreldri eða foreldrum, 67 ára og eldri:
vegna slyss utan starfs 1.037.600 kr.
vegna slyss í starfi 1.037.600 kr.
Rétthafar þessara dánarbóta eru lögerfingjar.
- Ef hinn látni var ógiftur en lætur eftir sig barn (börn) undir 18
ára aldri og/eða hefur sannanlega séð fyrir foreldri eða foreldrum, 67
ára og eldri:
vegna slyss utan starfs 3.178.300 kr.
vegna slyss í starfi 7.597.600 kr.
Rétthafar þessara dánarbóta eru foreldrar og börn. Taki báðir þessir
aðilar bætur, rennur 1/3 hluti bóta til foreldra en 2/3 hlutar bóta
skiptast milli barna að jöfnu.
- Ef hinn látni var í hjúskap eða í sambúð sem að öðru leyti má jafna
til hjúskapar og sem staðið hefur a.m.k. í 2 ár samfellt fyrir andlát
hans, skulu bætur til maka eða sambúðaraðila vera:
vegna slyss utan starfs 4.347.900 kr.
vegna slyss í starfi 12.398.800 kr.
Rétthafi dánarbóta þessara er viðkomandi maki eða sambúðaraðili.
- Ef hinn látni lætur eftir sig barn undir 18 ára aldri, til hvers
barns:
vegna slyss utan starfs 1.037.600 kr.
vegna slyss í starfi 2.479.500 kr.
Stundi barn hins látna á aldrinum 18-25 ára nám á framhaldsskóla- eða
háskólastigi í a.m.k. sex mánuði ársins er hinn tryggði andast, á það
sama rétt til bóta.
Rétthafar dánarbóta þessara eru viðkomandi börn. Bætur greiðast til
fjárhaldsmanns ófjárráða barns.
- Með börnum í 2. og 4. tölulið er átt við kynbörn, kjörbörn,
stjúpbörn, börn sambúðaraðila og fósturbörn, sem hinn látni var
framfærsluskyldur við sbr. 53. gr. barnalaga nr. 76/2003.
- Bætur greiðast aðeins skv. einum af töluliðum 1, 2 eða 3. Til
viðbótar við bætur skv. 2. og 3. tölulið geta komið bætur skv. 4.
tölulið.
7.1.3
Tryggingarfjárhæðir vegna varanlegrar örorku eru:
vegna slyss utan starfs 8.357.900 kr.
vegna slyss í starfi 22.050.600 kr.
Bætur greiðast í hlutfalli við tryggingarfjárhæðirnar, þó þannig að
hvert örorkustig frá 26-50% vegur tvöfalt og hvert örorkustig frá
51-100% vegur þrefalt.
7.1.4
Framangreindar tryggingarfjárhæðir miðast við vísitölu neysluverðs
í apríl 2019, 467,0 stig. Vísitölubinding bóta takmarkast við 3 ár frá
slysadegi.
7.1.5
Verði ríkissjóður eða vinnuveitandi skaðabótaskyldur gagnvart
vátryggða, skulu slysabætur skv. slysatryggingum þessum koma að fullu
til frádráttar skaðabótum er honum kann að verða gert að greiða.
7.1.6
Starfsmaður sem í starfi sínu sinnir einstaklingi sem að
takmörkuðu eða jafnvel engu leyti getur borið ábyrgð á gerðum sínum, á
rétt á að beina skaðabótakröfu sinni vegna líkams- eða munatjóns að
launagreiðanda. Við mat og uppgjör kröfunnar gilda almennar reglur
skaðabótaréttarins.
7.1.7
Kafli þessi um slysatryggingar, svo breyttur, gildir frá
undirskriftardegi.
7.2.1
Farangur starfsmanna á ferðalögum á vegum vinnuveitanda skal
tryggður skv. reglum um farangurstryggingu nr. 281/1988.
7.3.1
Verði starfsmaður sannanlega fyrir tjóni á algengum nauðsynlegum
fatnaði og munum við vinnu, svo sem úrum, gleraugum o.s.frv., skal það
bætt skv. mati. Náist ekki samkomulag, skal tjónið metið af einum
fulltrúa frá hvorum aðila.
Slík tjón verða einungis bætt ef þau verða vegna óhapps á vinnustað.
Eigi skal bæta slík tjón ef þau verða sannanlega vegna gáleysis eða
hirðuleysis starfsmanns.
8. Verkfæri og vinnuföt
8.1.1
Starfsmenn eru eigi skyldugir að leggja sér til verkfæri nema svo
sé sérstaklega um samið.
8.2.1
Þar sem krafist er einkennisfatnaðar eða sérstök hlífðarföt eru
nauðsynleg, t.d. vinnusloppar, skal starfsmönnum séð fyrir slíkum
fatnaði, þeim að kostnaðarlausu. Sama gildir um hlífðarföt vegna
óþrifalegra starfa og starfa sem hafa óvenjulegt fataslit í för með sér.
8.2.2
Starfsmönnum skal lagður til þeim að kostnaðarlausu sá
hlífðarútbúnaður sem krafist er skv. öryggisreglum, (svo sem öryggisskó,
eyrnaskjól, gasgrímur og öryggishjálma), enda er starfsmönnum skylt að
nota hann.
Um hlífðarfatnað er fjallað í viðauka 1 með kjarasamningi aðila
undirrituðum 11. júni 2004.
8.2.3
Hreinsun á fatnaði skv. gr. 8.2.1 og 8.2.2 skal látin í té
starfsmanni að kostnaðarlausu tvisvar á ári. Meiriháttar viðgerðir og
tjón á slíkum fatnaði skal bætt af vinnuveitandans hálfu. Starfsmenn
skulu fara vel og samviskusamlega með vinnufatnað og hlífðarföt.
8.2.4
Ef starfsmaður lætur af starfi, skal hann skila seinasta
einkennisfatnaði er hann fékk.
8.2.5
Samið skal við Eflingu nánar um þessi atriði, svo sem að hvaða
marki skuli taka tillit til sérstaklega mikilla óhreininda við störf,
sbr. viðauka 1.
Sjá kjarasamning fyrir nánari upplýsingar.
9. Afleysingar
9.1.1
Aðilar eru um það sammála, að eigi þurfi að jafnaði að fela
starfsmanni sérstaklega að gegna starfi yfirmanns nema fjarvera
yfirmannsins vari lengur en 7 vinnudaga samfellt.
9.2.1
Sé aðalstarf starfsmannsins launað sem staðgengilsstarf yfirmanns,
ber starfsmanni laun skv. flokki yfirmanns, gegni hann starfi hans
lengur en 4 vikur samfellt eða hann hafi gegnt starfi yfirmanns lengur
en 6 vikur á hverjum
12 mánuðum. Laun skv. flokki yfirmanns greiðast einungis frá lokum
nefndra
4 eða 6 vikna.
9.3.1
Starfsmaður sem ekki er í stöðu staðgengils yfirmanns, en er falið
að gegna störfum yfirmanns í forföllum hans eða störfum annars hærra
launaðs starfsmanns, skal taka laun skv. launaflokki hins forfallaða
starfsmanns þann tíma, er hann gegnir starfi hans.
10. Fræðslumál
10.1.1
Starfsmaður sem sækir fræðslu- eða þjálfunarnámskeið skv. heimild
stofnunar, eða í samræmi við endurmenntunar-/starfsþróunaráætlun
viðkomandi stofnunar, skal halda reglubundnum launum á meðan og fá
greiddan kostnað skv. ákvæðum 5. kafla.
10.1.2
Starfsmaður sem með samþykki stjórnar og/eða forstöðumanns
viðkomandi stofnunar stundar viðurkennt nám varðandi starf sitt eða
sækir viðurkennd framhalds- eða endurmenntunarnámskeið haldi föstum
launum með fullu vaktaálagi meðan slíkt nám varir, allt að þremur
mánuðum á hverjum þremur starfsárum. Launahlutfall í námsleyfi sé sem
næst meðaltali launa þann tíma sem rétturinn vannst á.
Heimilt er að veita skemmri eða lengri námsleyfi á skemmra eða lengra
árabili.
10.2.1
Starfsmaður skal eiga rétt á launalausu leyfi ef honum býðst
tækifæri og/eða styrkur til að vinna að tilteknu verkefni, m.a. tengdu
starfi hans. Slíkt leyfi skal tekið í samráði við yfirmann stofnunar.
10.3.1
Launagreiðandi greiðir mánaðarlega framlag er nemi 0,82% af
heildarlaunum félagsmanna Eflingar í sérstakan sjóð, Þróunar- og
símenntunarsjóð.
11. Stofnanaþáttur og samstarfsnefndir
11.1.1
Stofnanasamningur er hluti af kjarasamningi og er meðal annars
ætlað að stuðla að skilvirkara launakerfi sem tekur mið af þörfum og
verkefnum stofnunar og starfsmanna hennar. Hann er sérstakur samningur
milli stofnunar og stéttarfélags um aðlögun tiltekinna þátta
kjarasamningsins að þörfum stofnunar og starfsmanna með hliðsjón af eðli
starfsemi, skipulagi og/eða öðru því sem gefur stofnun sérstöðu.
Samstarfsnefndir eða nefndir samkvæmt gr. 11.4.1 annast gerð og
breytingar stofnanasamninga.
11.2.1
Aðilar kjarasamningsins eru sammála um að markmið þeirra, með að
færa í hendur stofnunar og stéttarfélags/starfsmanna hennar útfærslu
tiltekinna þátta kjarasamningsins, er að styrkja starfsemi viðkomandi
stofnunar þegar til lengri tíma er litið og skapa þannig forsendur fyrir
betri starfsskilyrðum starfsmanna.
Einnig að færa ákvörðun um launasetningu starfa nær starfsvettvangi þar
sem hægt er að bregðast hraðar við breytingum sem eiga sér stað á
störfum og skipulagi stofnana.
11.2.2
Markmið stofnanasamnings er að efla samstarf starfsmanna og
stjórnenda á vinnustað til þess að auka gæði opinberrar þjónustu. Einnig
að gefa starfsmönnum tækifæri til að þróast og bæta sig í starfi og þar
með að auka möguleika á bættum kjörum.
Samstarfinu er ætlað að bæta rekstrarskipulag stofnunar, bæta nýtingu
rekstrarfjármagns og skapa grundvöll fyrri aukinni hagræðingu og
skilvirkara launakerfi.
11.3.1
Röðun starfa
Í stofnanasamningi skal semja um grunnröðun starfa og hvaða þættir
og/eða forsendur skuli ráða röðun þeirra. Við ákvörðun á röðun starfa
í launaflokka skulu fyrst og fremst metin þau verkefni og skyldur sem
í starfinu felast auk þeirrar færni (kunnáttustig/-sérhæfing) sem þarf
til að geta innt starfið af hendi.
Starfslýsingar eru ein af forsendum röðunar starfa í launaflokka og
skulu þær endurskoðaðar í takt við þróun starfa t.d. í tengslum við
starfsmannasamtöl.
Þættir er koma til álita við mat á röðun starfs eru t.d.:
- Skipurit stofnunar eða annað formlegt starfsskipulag.
- Umfang verkefna/starfa (gæti verið mælt í manna- eða fjárforráðum
eða „þyngd"verkefna).
11.3.2
Persónubundnir þættir
Heimilt er að semja um persónubundna þætti sem gera starfsmenn hæfari
en ella til að sinna viðkomandi starfi.
Þeir þættir sem koma til álita eru t.d.:
- Aukin reynsla starfsmanns, t.d. starfsreynsla ýmist innan
stofnunar eða í sambærilegum störfum.
- Aukin hæfni starfsmanns, t.d. formleg menntun, eða framtak
starfsmanns við að afla sér símenntunar og þekkingar sem að gagni
kemur í starfi, t.d. með starfstengdum námskeiðum. Sérstaklega skal
meta formlegt nám sem lokið er með viðurkenndri prófgráðu.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði eða góður árangur í starfi.
11.3.3
Tímabundnir þættir
Eins er heimilt að semja um tímabundna þætti:
- Frammistaða starfsmanns, gæti t.d. tengst árangurs- eða
frammistöðumati.
- Aukin tímabundin verkefni, umfang eða ábyrgð.
11.3.4
Þegar fyrir liggur sameiginleg afstaða til m.a. þessara þátta er
þar með búið að ákveða hvaða þættir skuli ráða röðun starfsmanna
þessarar stofnunar. Starfsmaðurinn á þar með rétt á að fá röðun sína
endurmetna, telji hann sig uppfylla fyrrgreindar forsendur og stofnun er
skylt að endurraða honum ef það er rétt. Ef stofnun hafnar endurmati,
getur starfsmaður skotið því til samstarfsnefndar og þar er tekin
endanleg ákvörðun um hvort röðun starfsmanns skuli breytt eða ekki.
11.4.1
Heimilt er hvorum aðila um sig, stofnun eða fulltrúum
stéttarfélags að óska eftir endurskoðun stofnanasamnings verði
umtalsverðar breytingar á forsendum hans. Eigi sjaldnar en annað hvert
ár skal metið hvort forsendur starfaflokkunar hafi breyst þannig að
ástæða sé til að gera breytingar á stofnanasamningnum.
Hjá þeim stofnunum sem ekki fara með framkvæmd kjarasamningsins og hafa
þar af leiðandi ekki eigin samstarfsnefnd, skal sérstök nefnd sem skipuð
er allt að 3 fulltrúum frá hvorum aðila, þ.e. stéttarfélagi/starfsmönnum
og stofnun, gera samning, um breytingu á stofnanaþætti, sem háður er
staðfestingu samstarfsnefndar.
Sem dæmi um breytingar á forsendum má nefna breytta starfaflokkun í
miðlægum kjarasamningi og breytingar á forsendum starfaflokkunar hjá
stofnun og/eða breytingar á hlutverki eða starfsemi stofnunar.
11.4.2
Verði ágreiningur um hvort ástæða sé til breytinga skal honum
vísað til samningsaðila, þ.e. Launanefndar SFV og Eflingar.
11.5.1
Hjá þeim stofnunum SFV sem fara með framkvæmd kjarasamninga í
umboði fjármálaráðherra, skal komið á sjálfstæðum samstarfsnefndum, sem
skipaðar eru allt að 3 fulltrúum frá hvorum aðila, þ.e.
stéttarfélagi/starfsmönnum og stofnun og 3 til vara. Að öllu jöfnu skal
trúnaðarmaður á vinnustað vera í forsvari í nefndinni af hálfu Eflingar.
Forstöðumaður tilnefnir fulltrúa stofnunar.
Samstarfsnefnd hafi m.a. það hlutverk að fjalla um forsendur
starfaflokkunar, röðun einstakra starfa í launaflokka og koma á sáttum í
ágreiningsmálum sem rísa kunna út af samningi þessum. Eins skal nefndin
fjalla um röðun starfa skv. 25. gr. laga nr. 94/1986, um kjarasamninga
opinberra starfsmanna.
Í sérstökum tilvikum þar sem starfsmaður fellur ekki að hinum almennu
skilgreiningum er gilda um tiltekið starf í viðkomandi launaflokki er
heimilt, með samkomulagi í samstarfsnefnd, að raða honum í hærri
launaflokk.
11.5.2
Hjá þeim stofnunum sem ekki fara með framkvæmd kjarasamninga
skulu samningsaðilar með sama hætti tilnefna allt að 3 fulltrúa í
samstarfsnefnd og
3 til vara. Fjársýsla ríkisins annast, samkvæmt framsali, þátt
fjármálaráðherra fyrir þær stofnanir sem ekki fara með framkvæmd
kjarasamninga.
11.6.1
Hvor aðili um sig getur skotið ágreiningsefnum til nefndarinnar
og kallað hana til starfa. Beina skal erindi til gagnaðila með
skriflegum hætti. Gagnaðili skal koma á samstarfsnefndarfundi svo fljótt
sem auðið verður en þó ekki síðar en fjórum vikum eftir að erindið
berst. Samstarfsnefnd skal svara erindum innan 5 vikna frá því að þau
voru fyrst borin formlega fram á fundi nefndarinnar. Verði
samstarfsnefnd sammála um breytingar á röðun eða öðru því sem til hennar
hefur verið vísað, skal sú breyting gilda frá og með næstu mánaðamótum
eftir að erindið var fyrst formlega borið fram í nefndinni nema annað sé
sérstaklega ákveðið.
11.6.2
Náist ekki samkomulag í nefndinni innan þriggja mánaða frá því að
málið kemur til meðferðar á vettvangi hennar, getur hvor aðila um sig
óskað eftir því að inn í samstarfsnefndina komi annars vegar fulltrúi
frá ráðuneyti viðkomandi stofnunar og hins vegar fulltrúi tilnefndur af
viðkomandi félagi.
12. Réttur starfsmanna vegna veikinda og slysa
12.1.1
Ef starfsmaður verður óvinnufær vegna veikinda eða slyss, skal
hann þegar tilkynna það yfirmanni sínum sem ákveður hvort læknisvottorðs
skuli krafist og hvort það skuli vera frá trúnaðarlækni hlutaðeigandi
stofnunar. Krefjast má læknisvottorðs af starfsmanni vegna óvinnufærni
hvenær sem forstöðumanni/yfirmanni stofnunar þykir þörf á.
12.1.2
Ef starfsmaður kemur ekki til starfa vegna veikinda eða slyss í
meira en
5 vinnudaga samfleytt, skal hann sanna óvinnufærni sína með
læknisvottorði. Ef um er að ræða endurteknar fjarvistir starfsmanns,
skal hann sanna óvinnufærni sína með læknisvottorði eftir nánari
ákvörðun forstöðumanns/yfirmanns.
12.1.3
Ef starfsmaður er óvinnufær vegna veikinda eða slyss um langan
tíma, skal hann endurnýja læknisvottorð sitt eftir nánari ákvörðun
forstöðumanns/yfirmanns en þó ekki sjaldnar en mánaðarlega. Frá þessu má
þó veita undanþágu eftir tillögu trúnaðarlæknis ef hann telur auðsætt að
um lengri veikindafjarvist verði að ræða.
12.1.4
Skylt er starfsmanni sem er óvinnufær vegna veikinda eða slyss að
gangast undir hverja þá venjulega og viðurkennda læknisrannsókn sem
trúnaðarlæknir kann að telja nauðsynlega til þess að skorið verði úr því
hvort forföll séu lögmæt, enda sé kostnaður vegna viðtals við lækni og
nauðsynlegra læknisrannsókna greidd af vinnuveitanda.
12.1.5
Endurgreiða skal starfsmanni gjald vegna læknisvottorða sem
krafist er skv. gr. 12.1.1-12.1.4. Sama gildir um viðtal hjá lækni vegna
öflunar vottorðs.
12.1.6
Vinnuveitandi greiði starfsmanni þau útgjöld sem starfsmaður
hefur orðið fyrir af völdum slyss á vinnustað og slysatryggingar
almannatrygginga bæta ekki skv. 32. gr. laga nr. 100/2007 um
almannatryggingar.
12.2.1
Starfsmaður sem ráðinn er til starfa á mánaðarlaunum skv. gr.
1.1.1
í kjarasamningi í a.m.k. 2 mánuði, skal halda launum skv. gr.
12.2.6
- 12.2.7 svo lengi sem veikindadagar hans, taldir í
almanaksdögum, verða ekki fleiri á hverjum 12 mánuðum en hér segir:
[Starfstími Fjöldi daga]{.underline}
0- 3 mánuði í starfi 14 dagar
Næstu 3 mánuði í starfi 35 dagar
Eftir 6 mánuði í starfi 119 dagar
Eftir 1 ár í starfi 133 dagar
Eftir 7 ár í starfi 175 dagar
Við framantalinn rétt bætist auk þess réttur til mánaðarlauna skv. gr.
1.1.1
í kjarasamningi í 13 vikur eða 91 dag ef óvinnufærni stafar af
vinnuslysi eða atvinnusjúkdómi. Við þessi laun bætast ekki greiðslur
skv. gr. 12.2.6-12.2.7.
[Starfstími Fjöldi daga]{.underline}
Eftir 12 ár í starfi 273 dagar
Eftir 18 ár í starfi 360 dagar
Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa, nema þegar
um vinnuslys er að ræða þá heldur starfsmaður greiðslum þar til hann
telst vinnufær eða hann tæmir rétt sinn til launa hvort sem fyrr næst.
12.2.2
Starfsmaður sem ráðinn er í tímavinnu, sbr. þó gr. 12.2.3, eða er
ráðinn skemur en 2 mánuði, skal halda launum skv. gr. 12.2.6 - 12.2.7
svo lengi sem veikindadagar hans, taldir í almanaksdögum, verða ekki
fleiri á hverjum
12 mánuðum en hér segir:
[Starfstími Fjöldi daga]{.underline}
Á 1. mánuði í starfi 2 dagar
Á 2. mánuði í starfi 4 dagar
Á 3. mánuði í starfi 6 dagar
Eftir 3 mánuði í starfi 14 dagar
Eftir 6 mánuði í starfi 30 dagar
Við framantalinn rétt bætist auk þess réttur til dagvinnulauna í 13
vikur eða
91 dag ef óvinnufærni stafar af vinnuslysi eða atvinnusjúkdómi. Við
þessi laun bætast ekki greiðslur skv. gr. 12.2.6-12.2.7.
Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa, nema þegar
um vinnuslys er að ræða þá heldur starfsmaður greiðslum þar til hann
telst vinnufær eða hann tæmir rétt sinn til launa hvort sem fyrr næst.
12.2.3
Réttur eftirlaunaþega í tímavinnu, eða annars konar vinnu, til
launa vegna óvinnufærni af völdum veikinda eða slysa skal vera 1 mánuður
á hverjum
12 mánuðum. Laun í veikindum skal miða við meðaltal dagvinnulauna
síðustu 3 mánuði fyrir veikindi.
Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.
12.2.4
Starfsmaður sem skilar vinnuskyldu sinni óreglubundið eða með
öðrum hætti en dagvinnumaður í reglubundinni vinnu, skal teljast hafa
verið fjarverandi í eina viku þegar hann hefur verið óvinnufær vegna
veikinda eða slysa sem nemur vikulegri vinnuskyldu hans og hlutfallslega
þegar um styttri eða lengri fjarvist vegna óvinnufærni er að ræða.
12.2.5
Við mat á ávinnslurétti starfsmanns skv. gr. 12.2.1 skal auk
þjónustualdurs hjá viðkomandi launagreiðanda einnig telja þjónustualdur
hjá stofnunum ríkis, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum sem
kostaðar eru að meirihluta til af almannafé.
Á fyrstu 3 mánuðum samfelldrar ráðningar skal þó fyrri starfsaldur
samkvæmt þessari grein ekki metinn nema að viðkomandi starfsmaður hafi
samfelldan starfsaldur hjá framangreindum launagreiðendum í 12 mánuði
eða meira.
12.2.6
Í fyrstu viku veikinda- og slysaforfalla eða þann tíma sem svarar
til einnar viku vinnuskyldu starfsmanns greiðast auk mánaðarlauna skv.
gr. 1.1.1 í kjarasamningi, fastar greiðslur svo sem fyrir yfirvinnu,
vaktahvata, vakta-, gæsluvakta- og óþægindaálag og greiðslur fyrir eyður
í vinnutíma enda sé um að ræða fyrirfram ákveðinn vinnutíma samkvæmt
reglubundnum vöktum eða reglubundinni vinnu starfsmanns sem staðið hefur
í 12 almanaksmánuði eða lengur eða er ætlað að standa a.m.k. svo lengi.
12.2.7
Eftir fyrstu viku veikinda- og slysaforfalla eða þann tíma sem
svarar til einnar viku vinnuskyldu starfsmanns, skal hann auk launa sem
greidd verða skv. gr. 12.2.6, fá greitt meðaltal þeirra yfirvinnustunda
og breytingargjalda skv. gr. 2.6.2 sem hann fékk greiddar síðustu 12
mánaðarleg uppgjörstímabil yfirvinnu eða síðustu 12 heilu
almanaksmánuðina. Við útreikning yfirvinnustunda samkvæmt þessari grein
skal ekki telja með þær yfirvinnustundir sem greiddar hafa verið skv.
gr. 12.2.6.
12.2.8
Ef starfsmaður er fjarverandi vegna orlofs á viðmiðunartímabili
skv. gr. 12.2.7, skal telja að hann hafi sama meðaltal yfirvinnu
orlofsdagana og hinn hluta tímabilsins.
12.2.9
Verði starfsmaður óvinnufær af völdum slyss á vinnustað eða á
eðlilegri leið til eða frá vinnu, greiðast laun skv. gr. 12.2.7 frá
upphafi fjarvistanna.
12.2.10
Ef starfsmaður að læknisráði og með leyfi forstöðumanns vinnur
skert starf vegna slyss eða veikinda, skal miða greiðslu veikindalauna
fyrir dagvinnu við það starfshlutfall sem vantar á að hann sinni fullu
starfi.
12.3.1
Starfsmaður sem verið hefur óvinnufær vegna veikinda eða slysa
samfellt í
1 mánuð eða lengur, má ekki hefja starf að nýju nema læknir votti að
heilsa hans leyfi. Krefjast má vottorðs trúnaðarlæknis hlutaðeigandi
stofnunar.
12.4 Lausn frá störfum vegna endurtekinnar eða langvarandi óvinnufærni
12.4.1
Ef starfsmaður er óvinnufær vegna veikinda eða slysa svo mánuðum
skiptir á hverju ári um fimm ára tímabil og ekki er skýlaust vottað
samkvæmt ákvæðum gr. 12.3.1 að hann hafi fengið heilsubót sem ætla megi
varanlega, má leysa hann frá störfum vegna heilsubrests.
12.4.2
Þegar starfsmaður hefur verið samfellt frá vinnu vegna veikinda
eða slysa launalaust í jafnlangan tíma og þann tíma er hann átti rétt á
að halda launum í fjarveru sinni skv. gr. 12.2.1, má leysa hann frá
störfum vegna heilsubrests.
12.4.3
Ekki skulu framangreind ákvæði um veikinda- og slysaforföll vera
því til fyrirstöðu að starfsmaður láti af störfum er hann óskar þess ef
hann er samkvæmt læknisvottorði orðinn varanlega ófær um að gegna starfi
vegna vanheilsu. Krefjast má vottorðs trúnaðarlæknis hlutaðeigandi
stofnunar.
12.5.1
Þegar starfsmaður er leystur frá störfum skv. gr. 12.4.1-12.4.3,
skal hann halda föstum launum skv. gr. 12.2.6 í 3 mánuði.
12.5.2
Sama gildir um greiðslu vegna látins starfsmanns ef hinn látni
var í hjúskap, staðfestri samvist, skráðri sambúð eða sambúð sem að öðru
leyti má jafna til hjúskapar í merkingu 49. gr. almannatryggingalaga nr.
100/2007.
12.5.3
Þegar starfsmanni er veitt lausn skv. gr. 12.4.1-12.4.3 eða hann
andast, skal greiða laun hans, svo sem ella hefði verið gert, til loka
lausnar- eða andlátsmánaðar áður en laun skv. gr. 12.5.1 -12.5.2 koma
til álita. Þetta á þó ekki við ef launagreiðslum hefur áður lokið, t.d.
vegna þess að réttur til launa í veikindum skv. gr. 12.2.1-12.2.10 var
tæmdur.
12.6.1
Halda skal skrá yfir veikindadaga starfsmanns við hverja stofnun.
Ef starfsmaður flyst milli starfa, skal leggja saman veikindadaga hans í
báðum störfum eftir því sem við á.
12.7.1
Veikindatími starfsmanns í fæðingarorlofi telst ekki til
veikindaforfalla og á starfsmaður ekki rétt til launa í veikinda- og
slysatilvikum þann tíma.
12.8.1
Foreldri/forráðamaður á rétt á að vera frá vinnu í samtals 12
vinnudaga (86,4 vinnuskyldustundir miðaða við fullt starf) á hverju
almanaksári vegna veikinda barna sinna undir 13 ára aldri, enda verði
annarri umönnun ekki við komið. Í þessum fjarvistum skal greiða
starfsmanni dagvinnulaun og vaktaálag skv. reglubundinni
varðskrá/vaktskrá. Réttur þessi hefur ekki áhrif á rétt starfsmanns skv.
öðrum greinum.
12.9.1
Vinnuveitandi greiði mánaðarlega framlag í styrktar- og
sjúkrasjóð Eflingar sem nemi 0,75% af heildarlaunum starfsmanns.
12.9.2. Iðgjald launagreiðanda í Starfsendurhæfingarsjóð skal nema 0,13%
af heildarlaunum félagsmanna.
*Þó skulu iðgjöld atvinnurekenda og þeirra sem stunda sjálfstæða
starfsemi og lífeyrissjóða til starfsendurhæfingarsjóðs vera 0,10% af
stofni til iðgjalds vegna áranna 2016 og 2017 í samræmi við ákvæði 33.
gr. laga nr. 124/2015*
12.10.1
Komi upp ágreiningur um túlkun þessa kafla skal leita álits
sérstakrar samráðsnefndar um veikindarétt og skal það haft til
hliðsjónar í samstarfsnefnd aðila.
13. Tilhögun fæðingarorlofs
13.1.1
Kafli þessi tekur til foreldris sem er í a.m.k. 25% starfi og
starfað hefur í samfellt 6 mánuði fyrir fæðingu barns síns hjá
hlutaðeigandi launagreiðanda og er með gilda ráðningu við upphaf
orlofsins.
13.2.1
Um uppsöfnun og vernd réttinda í fæðingarorlofi fer skv. 14. gr.
laga
nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof.
13.2.2
Starfsmaður sem hefur töku fæðingarorlofs, telst skv.
framangreindu vera leystur undan vinnuskyldu á meðan á fæðingarorlofi
hans stendur, sbr. 29. gr. framangreindra laga.
13.2.3
Starfsmaður sem er í fæðingarorlofi nýtur réttinda til greiðslu
sumarorlofs, persónu- og orlofsuppbótar.
14. Lífeyrissjóðsgreiðslur og viðbótaframlag til lífeyrissparnaðar
14.1.1
Starfsmaður, 16 ára og eldri, skal greiða 4% af heildarlaunum í
lífeyrissjóð viðkomandi stéttarfélags.
14.1.2
Mótframlag vinnuveitanda skal 11,5%. Mótframlag þetta byggir á
eftirfarandi forsendum: Að ekki verði breytingar á lífeyriskerfi
opinberra starfsmanna og ef tryggingastærðfræðilegar forsendur leiða til
breytingar á mótframlagi hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins þá
breytist mótframlag samkvæmt þessari grein á sama hátt.
14.2.1
Í þeim tilvikum sem starfsmaður leggur til viðbótarframlag í
séreignarsjóð, greiðir vinnuveitandi framlag á móti allt að 2% gegn 2%
framlagi starfsmanns.
15. Launaseðill og félagsgjöld
15.1.1
Við greiðslu launa til starfsmanns á hann rétt á að fá launaseðil
merktan nafni sínu. Á launaseðli skulu tilgreind föst laun starfsmanns
það tímabil sem greiðslan tekur til, fjöldi yfirvinnustunda, uppsöfnun
frítökuréttar og sundurliðun einstakra tekna og frádráttarliða sem leiða
til útgreiddrar launafjárhæðar.
15.2.1
Launagreiðandi tekur að sér að halda eftir félagsgjöldum af kaupi
starfsmanns til viðkomandi aðildarfélags og gera mánaðarlega skil á þeim
til félagsins. Félagsgjöld skulu vera hlutfall af heildarlaunum
starfsmanns. Breytingar á hundraðshluta félagsgjalda skulu tilkynntar
launagreiðanda skriflega a.m.k. 4 vikum fyrir virkni þeirra í
launakerfinu. Breytingar miðist við mánaðamót.
15.3.1
Launatöflu skulu staðfestar af samningsaðilum.
16. Félagsmálefni
16.1.1
Félagsmenn Eflingar skulu hafa forgangsrétt til vinnu við störf
þau sem samningur þessi tekur yfir, enda sé félagið jafnan opið til
inngöngu fyrir fólk sem um það sækir og uppfyllir almenn
inngönguskilyrði skv. samþykktum félagsins.
16.1.2
Fyrirsvarsmaður stofnunar skal ávallt hafa frjálst val um hvaða
félagsmenn Eflingar eru ráðnir til vinnu.
16.2.1
Kosning trúnaðarmanna
16.2.2
Starfsmönnum er heimilt að kjósa einn trúnaðarmann á hverjum
vinnustað þar sem starfa 5 - 50 starfsmenn og tvo trúnaðarmenn þar sem
starfa 51-100, þrjá þar sem starfa 101-175, fjóra þar sem starfa 176-275
og fimm þar sem starfa 276 eða fleiri. Að kosningu lokinni tilnefnir
viðkomandi stéttarfélag trúnaðarmennina. Verði kosningu ekki komið við,
skulu trúnaðarmenn tilnefndir af félaginu.
16.2.3
Trúnaðarmenn verða eigi kosnir eða tilnefndir til lengri tíma en
tveggja ára í senn.
16.3.1
Trúnaðarmönnum á vinnustað skal í samráði við yfirmenn heimilt að
verja, eftir því sem þörf krefur, tíma til starfa sem þeim kunna að
verða falin af starfsmönnum á viðkomandi vinnustað og/eða viðkomandi
aðildarfélagi vegna starfa sinna sem trúnaðarmanna og skulu laun þeirra
ekki skerðast af þeim sökum.
16.3.2
Gögn sem trúnaðarmenn hafa aðgang að
Trúnaðarmönnum skal heimilt í sambandi við ágreiningsefni að yfirfara
gögn og vinnuskýrslur sem ágreiningsefnið varðar.
Að auki getur trúnaðarmaður að eigin frumkvæði óskað eftir upplýsingum
um laun og starfskjör erlendra starfsmanna telji hann að ekki sé farið
að ákvæðum kjarasamningsins. Sé trúnaðarmaður ekki til staðar getur
starfsmaður stéttarfélags óskað upplýsinganna í hans stað.
Fara skal með allar upplýsingar sem fengnar eru á grundvelli þessarar
greinar sem trúnaðarmál.
16.3.3
Aðstaða trúnaðarmanna
Trúnaðarmenn á vinnustað skulu hafa aðgang að læstri hirslu og aðgang að
síma í samráði við yfirmenn.
16.3.4
Kvartanir trúnaðarmanna
Trúnaðarmenn skulu bera kvartanir starfsfólks upp við næsta yfirmann eða
annan fyrirsvarsmann stofnunar áður en leitað er til annarra aðila.
16.4.1
Trúnaðarmönnum hjá hverri stofnun skal heimilt að boða til fundar
með starfsfólki tvisvar sinnum á ári í vinnutíma á vinnustað. Fundirnir
hefjist einni klst. fyrir lok dagvinnutíma eftir því sem við verður
komið. Til fundanna skal boðað í samráði við viðkomandi aðildarfélag og
fyrirsvarsmenn stofnunarinnar með þriggja daga fyrirvara nema
fundarefnið sé mjög brýnt og í beinum tengslum við vandamál á
vinnustaðnum. Þá nægir eins dags fyrirvari. Laun starfsmanna skerðist
eigi af þessum sökum fyrstu klukkustund fundartímans.
16.5.1
Trúnaðarmönnum skal heimilt að sækja þing, fundi, ráðstefnur og
námskeið á vegum viðkomandi stéttarfélags í allt að eina viku einu sinni
á ári án skerðingar á reglubundnum launum. Sama gildir um stjórnarmenn
félagsins. Tilkynna skal yfirmanni um slíkar fjarvistir með a.m.k. viku
fyrirvara.
16.6.1
Þeir félagsmenn sem kjörnir eru í samninganefnd eða kjörnefnd
viðkomandi stéttarfélags, skulu fá leyfi til að sinna því verkefni án
skerðingar á reglubundnum launum. Tilkynna skal yfirmanni um slíkar
fjarvistir með eðlilegum fyrirvara.
16.7.1
Trúnaðarmenn skulu í engu gjalda þess hjá yfirmönnum stofnunar að
þeir beri fram kvartanir fyrir hönd starfsmanna.
16.7.2
Óheimilt er að segja trúnaðarmönnum upp vinnu vegna starfa þeirra
sem trúnaðarmanna eða láta þá á nokkurn annan hátt gjalda þess að
viðkomandi stéttarfélag hefur falið þeim að gegna trúnaðarmannsstörfum
fyrir sig.
16.8.1
Trúnaðarmönnum á vinnustað skal gefinn kostur á að sækja námskeið
sem miða að því að gera þá hæfari í starfi. Þeir sem námskeiðin sækja,
skulu halda reglubundnum launum í allt að eina viku á ári. Í stofnunum
þar sem starfa fleiri en 15 félagsmenn, skulu trúnaðarmenn halda
reglubundnum launum í allt að tvær vikur á fyrsta ári. Þetta gildir um
einn trúnaðarmann á ári hjá hverri stofnun, séu félagsmenn í starfi
5-50, um tvo trúnaðarmenn séu félagsmenn fleiri en 50, þrjá séu
félagsmenn fleiri en 100, fjóra séu félagsmenn fleiri en 175 og fimm séu
félagsmenn 276 eða fleiri. Námskeiðin skulu viðurkennd af
samningsaðilum.
Ef trúnaðarmannanámskeið er skipulagt þannig að fjarvera trúnaðarmanns
frá vinnu er ekki meiri en einn dag viku hverja, halda trúnaðarmenn
reglulegum launum í allt að tíu virka daga á ári.
Sitji trúnaðarmaður heils dags námskeið verður honum ekki gert að sinna
vinnu þann dag. Í öllum tilvikum skal tilkynna yfirmanni stofnunar með
eðlilegum fyrirvara um fjarvistir vegna námskeiða.
17. Uppsagnarfrestur
17.1.1
Uppsögn á reynslutíma
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á reynslutíma (sem er þrír mánuðir nema
annað sé ákveðið í viðkomandi ráðningarsamningi) er einn mánuður.
17.1.2
Uppsögn að loknum reynslutíma
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur að loknum reynslutíma er 3 mánuðir.
17.1.3
Uppsagnarfrestur eftir tíu ára samfellt starf
Sé starfsmanni sagt upp, eftir a.m.k. 10 ára samfellt starf hjá sömu
stofnun, er uppsagnarfrestur sem hér segir:
- 4 mánuðir ef starfsmaður er orðinn 55 ára
- 5 mánuðir ef hann er orðin 60 ára
- 6 mánuðir þegar hann er orðinn 63 ára
Starfsmaður getur hins vegar sagt upp starfi sínu með þriggja mánaða
fyrirvara.
17.2.1
**Tímabundin ráðning fellur úr gildi án uppsagnar við lok
samningstíma**
Ráðning starfsmanns, sem ráðinn er tímabundið, fellur úr gildi við lok
samningstíma án uppsagnar. Ef annar hvor aðila vill slíta
ráðningarsambandinu fyrr gilda eftirfarandi ákvæði.
17.2.2
Uppsagnarfrestur á fyrstu þremur mánuðum
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur í reglubundnu starfi á fyrstu 3 mánuðum
starfstímans skal vera ein vika miðað við vikuskipti. Vikuskipti miðast
við föstudag.
17.2.3
Uppsagnarfrestur eftir 3 mánuði
Eftir þriggja mánaða samfellt starf skal gagnkvæmur uppsagnarfrestur
vera einn mánuður.
17.3.1
Starfsmenn sem ráðnir eru óreglubundið um lengri eða skemmri
tíma, hafa ekki sérstakan uppsagnarfrest á fyrsta mánuði en eina viku
þaðan í frá.
17.3.2
Ef starfsmanni er sagt upp vegna ástæðna sem rekja má til þess
hvernig hann rækir starf sitt eða hegðunar hans að öðru leyti, skal hann
fyrst áminntur skriflega og honum gefið tækifæri til að bæta sig áður en
til formlegrar uppsagnar kemur, nema að um gróft brot sé að ræða. Sjá
áminningarferlið í kassa hér fyrir neðan.
Aðilar eru sammála um að eftirfarandi ferli sé beitt við áminningar
starfsmanna skv. gr. 17.3.2 áður en til uppsagnar kemur:
- Viðtal yfirmanns og starfsmanns.
- Munnleg áminning/aðvörun. Trúnaðarmaður viðstaddur.
- Skrifleg ámminging/aðvörun. Trúnaðarmaður viðstaddur. Yfirmaður,
starfsmaður og trúnaðarmaður staðfesta áminninguna með undirskrift
sinni.
17.4.1
Uppsögn skal vera skrifleg og miðast við mánaðamót nema
gagnkvæmur uppsagnarfrestur sé minni en 1 mánuður. Sé svo, skal uppsögn
miðast við vikuskipti.
18. Gildistími, atkvæðagreiðsla og samningsforsendur
Sjá kjarasamning fyrir nánari upplýsingar.
Sjá kjarasamning fyrir nánari upplýsingar.
Launatöflur
Launatafla sem gildir frá 1. apríl 2024
Þrep 0-8 vísar til starfsaldursþrepa.
Launatafla sem gildir frá 1. apríl 2025
Þrep 0-8 vísar til starfsaldursþrepa.
Launatafla sem gildir frá 1. apríl 2026
Þrep 0-8 vísar til starfsaldursþrepa.
Launatafla sem gildir frá 1. apríl 2027
Þrep 0-8 vísar til starfsaldursþrepa.